Jesús og 12 sporin

Fimmta sporið.
“ Við viðurkenndum fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri
manneskju nákvæmt eðli misgjörða okkar.
Iðrun fyrir dauð verk
Í fimmta spori Alcoholics Anonymous er talað um iðrun og játningu. Ég tengi þetta tvennt saman vegna þess að ég sé engan tilgang með því síðarnefnda án þess fyrrnefnda. Játningu verður að byggja á einlægri iðrun, iðrun sem er ávöxtur verks Guðs í lífum okkar. Annars hefur hún engin áhrif.
Hevrnig tengist þetta okkar elskaða Jesú Kristi, sem hefur ekkert gerst sem krefst fyrirgefningar? Í fyrsta lagi vil ég skoða bænina sem hann gaf okkur sem fyrirmynd:
„Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.“
Í þessari bæn sendir Kristur okkur fyrst til föðurins og beinir bænum okkar, þakkargjörð eða beiðnum um fyrirgefningu til föðurins. Iðrun er óumdeilanlega fyrsta skref syndara sem snýr sér til Guðs. Hún krefst þó meðvitundar um syndir okkar, sem við unnum í í fjórða skrefi. Án meðvitundar um syndir okkar getum við ekki sé hversu stórkostleg fórn Guðs var á krossinum. Lítum á iðrun í verki eins og Páll, postuli okkar og bróðir, setur hana fram í ritningunni, í Rómverjabréfinu 2:4. Guð vill leiða okkur til afturhvarfs eða iðrunar – iðrun kemur frá Guði.
Játning:
„Játið því hvert fyrir öðru syndir ykkar og biðjið hvert fyrir öðru til þess að þið verðið
heilbrigð. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.“ Jakobsbréfið 5:16.
Samkvæmt þessu versi hreinsar játning okkur og læknar. Það eru margar ólíkar skoðanir á því fyrir hverjum við ættum að játa og hverjum ekki en það snýst að mestu leyti um að tryggja að afleiðingar játningarinnar séu uppbyggilegar. Með þessu á ég við hvort þú ættir að játa eitthvað fyrir bróður þínum sem hefur ekki háð honum eða sem gæti valdið vandamálum í hans eigin lífi.
Til dæmis að þér finnist hann leiðinlegur og vitlaus eða, það sem öllu alvarlegra er, að játa fyrir honum að þig hafi lengi dreymt um konuna hans! Ég myndi segja að það væri betra að halda því fyrir sjálfan þig, biðja Guð fyrirgefningar og biðja Guð að hjálpa þér að elska bróður þinn eins og Guð elskar hann. Það er betra að vera vitur en að fylgja ferli í blindni.
Hvernig finn ég réttu aðferðina? Ég tel að til þess að öðlast skilning á og halda okkur á Guðs vegum í réttu jafnvægi verðum við að líta á orð Guðs í heild sinni, ekki bara í bútum – annars villumst við af leið. Samkvæmt orðinu ætti allt sem við gerum í kirkjunni að vera til uppbyggingar og hvatningar. Þess vegna ætti það að játa syndir fyrir bræðrum okkar og systrum einnig að fylgja þeirri reglu, að það sé til uppbyggingar og blessunar. Lítum á skref játningarinnar.
Kall til iðrunar
Lúkasarguðspjall 13:1-5. Iðrun er það að snúa sér frá synd, frá heiminum og frá djöflinum. Hún er það að snúa okkur til Guðs. Hún er breyting á hugsunum okkar og tilfinningum, vilja okkar og hegðun. Lítum á orðið.
Tilgangur
Gildi og mikilvægi guðlegrar iðrunar í lífi hins trúaða og ávextir í samræmi við réttlætinguna sem hún leiðir af sér. Maðurinn ber ábyrgð á gjörðum sínum og upplifir samviskubit vegna syndar sinnar. Iðrun veldur því að við snúum okkur frá synd og aftur til Guðs.
Skilgreining:
Við þurfum að skilja til fulls merkingu orðsins „iðrun“ eins og það er notað í ritningunni. Í Nýja testamentinu er gríska orðið „metanoein“ yfirleitt þýtt sem „iðrun“ eða „afturhvarf“. Þessi gríska sögn hefur átt sér sömu merkingu út í gegnum sögu grískrar tungu, allt frá forngrísku til grískunnar í Nýja testamentinu. Þessi grundvallarmerking er alltaf sú sama: „að taka sinnaskiptum“. Iðrun í Nýja testamentinu er þess vegna ekki tilfinning heldur ákvörðun. Skilningur á þessu getur hjálpað okkur að koma í veg fyrir misskilning varðandi iðrunina.
Margir tengja iðrun við tilfinningar og við það að fella tár. Það er þó hægt að komast í mikið tilfinningalegt uppnám og fella mörg tár án þess að iðrast nokkurn tímann í biblíulegum skilningi.
Aðrir tengja iðrun við ákveðnar trúarathafnir, sem er oft talað um sem „að gera iðrun“. Það sama gildir um þetta: það er hægt að framkvæma margar trúarlegar athafni án þess að iðrast raunverulega í biblíulegum skilningi.
Sönn iðrun er föst, innri ákvörðun, sinnaskipti.
Ef við förum aftur til Gamla testamentisins sjáum við að orðið sem er oftast þýtt sem „iðrun“ þýðir bókstaflega „að snúa við, fara til baka“. Í Nýja testamentinu þýðir orðið „iðrun“ innri ákvörðun, djúp sinnaskipti, á meðan orðið í Gamla testamentinu vísar til hreyfingar eða aðgerðar sem tjáir innri
sinnaskipti: það að snúa við eða fara til baka. Iðrun er þess vegna innri breyting sem leiðir af sér nýja stefnu í áttina til Guðs. Þessi breyting er upplifun, viðhorf og ferli sem heldur áfram svo lengi sem hinn trúaði lifir.
Iðrun: Endurtekning – að snúa við, snúa til baka. Lífinu er gefin ný stefna.
Sviðin þrjú sem verða fyrir áhrifum og stig iðrunar í Matteusarguðspjalli 3:2 og Postulasögunni 17:30.
1. Fyrsta stigið á sér stað í huga okkar og hefur áhrif á skilning okkar á því
hvaðan þekking á syndinni kemur. Þetta er vitsmunaleg viðhorfsbreyting þar
sem við sjáum að okkar gamla líf einkenndist af synd og felur í sér tilfinningu
um sekt, óhreinleika og bjargarleysi. Róm. 3:20. Hugurinn. Post. 2:14-40.
2. Annað stigið er tilfinningalegt. Þetta er tilfinningalegur þáttur sem felur í sér
sársauka- og sorgartilfinningar, breyting í hjarta okkar sem vekur með okkur
meðvitund um þá synd sem við höfum drýgt gagnvart Guði. Sálmur 51. Síðara
Kór. 7:9,10.
3. Þriðja stigið á sér stað í vilja okkar. Þetta er viljatengdur þáttur þar sem við
öðlumst nýjan tilgang, snúum okkur frá synd og viljum leita fyrirgefningar og
hreinsunar. Post. 2:38. Við viljum breyta hugsun okkar – sem er það sem
gríska orðið „metanoia“ þýðir – og snúa persónuleika okkar við.
.............................
Almennt séð felur iðrun í sér skýrari sjón á lífið sem leiðir til örvæntingar syndarans
yfir sjálfum sér og höfnunar hans á hugmyndum um að hann geti bjargað sjálfum sér
með því sem hann geirr sjálfur. Róm. 7:24.
a. Játning synda við Guð. Fyrra Jóh. 1:9.
b. Játning mannsins, m.a. endurreisn. Matt. 6:14-15, Lúk. 19:8.
c. Að snúa sér frá synd. Orðskv. 28:13, Síðara Kór. 6:14-18.
d. Að snúa sér til Guðs.